fbpx

Um Lífsvirðingu

Markmið og tilgangur

Markmið Lífsvirðingar er að stuðla að uppbyggilegri umræðu og fræðslu um rétt fólks til að deyja á eigin forsendum.

Tilgangur félagsins er:

    • að stuðla að opinni, málefnalegri og víðtækri umræðu um dánaraðstoð. Félagið leggur áherslu á að einstaklingur hafi yfirráð yfir líkama sínum, lífi og dauða.
    • að vinna að því að samþykkt verði löggjöf um það við vissar, vel skilgreindar aðstæður, og að uppfylltum ströngum skilyrðum, verði dánaraðstoð mannúðlegur valkostur fyrir þá sem kjósa að deyja á eigin forsendum. Félagið telur að dánaraðstoð með skýrum skilyrðum teljist til mannréttinda.
    • að standa fyrir upplýsingagjöf, fundum og ráðstefnum um dánaraðstoð og vera í góðum tengslum við sambærileg félög erlendis.
Image